Ljósmyndabók
Ævintýrið um Rauðasand, einstakan stað á sunnanverðum Vestjörðum. Afskekktu en þó alþekktu svæði.
Sagan er sérstæð og sveipuð dulúð. Rauðisandur er fyrst og fremst þekktur fyrir sérstaka og mikla náttúrufegurð. Rauðisandur er um 14 kílómetra langur með endalausum litatónum, skeljasandsfjörum og bergvatnsám sem tengjast ströndinni (hafinu) á undursamlegan hátt. Umgjörðin er fjallahringur, einn sá tignarlegasti á landinu með Látrabjarg í vestri.
Ari Ívarsson er fæddur á Melanesi á Rauðasandi þann 21. júlí 1931 og uppalinn þar. Hann skrifar texta bókarinnar sem segir sögu lands og menningar. Tvítugur flutti hann til Patreksfjarðar og starfaði sem ýtumaður árum saman. Ari hefur áhuga á jarðfræði og glöggt auga fyrir náttúru landsins. Í tómstundum á efri árum hefur hann varið ómældum tíma í sagn- og þjóðfræðilegar rannsóknir. Hann hefur ritað margar og merkar greinar í bókaflokkana Frá Bjargtöngum að Djúpi og Árbók Barðastrandarsýslu.
Glæsileg bók á gæðapappír.
Síðufjöldi: 80 síður.
Stærð bókar: 20x27 sm.
Textar á íslensku og ensku.
Verð kr. 4.990.
Sendum bókina í pósti hvert sem er.