Stúdentamyndir

Margir stúdentar velja hálfa myndatöku, þ.e. 6 myndir í möppu og eru þá að leita eftir klassísku portretti, ýmist svart hvítu og/eða í lit. Einnig nota margir tækifærið og fá fjölskyldumyndir í tilefni dagsins. Vinir sem hafa verið saman í framhalds-skólum koma gjarnan og láta taka mynd af sér í tilefni útskriftar og myndast oft skemmtileg stemmning. Við tökum alltaf fleiri myndir en afhentar eru en markmiðið er að afhenda góða möppu með myndum sem fólk er sátt við.

Ljósmyndastofa Skipholti 31, 105 Reykjavík (kort) s: 5680150 rut@rut.is